Rafknúnir golfbílar á götur hérlendis

Fyrirtækið Jötunn vélar er farið að bjóða rafknúna golfbíla sem fást skráðir á númer og eru því löglegir í umferðinni á Íslandi. Þetta kom fram í þættinum Atvinnulífið á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í gærkvöld en þar heimsótti umsjármaðurinn Sigurður K. Kolbeinsson þetta viðamikla fyrirtæki sem hefur þjónað íslenskum landbúnaði af metnaði og lipurð um árabil, en er nú farið að færa út kvíarnar - og raunar í samræmi við upprunann, því mörg tún bænda hafa undanfarin ár breyst í fagrar golfbrautir fyrir kylfinga.


Að sögn Finnboga Magnússonar, framkvæmdastjóra Jötuns eru golfbílarnir útbúnir sérstakri fjöðrun, framljósum og öðru því sem gerðar eru kröfur um varðandi skráningu ökutækja á Íslandi.  Því er létt verk í sjálfu sér að gera allt klárt fyrir golftúrinn heima í hlaði og aka síðan slíkum rafbíl beint á golfvöllinn. Að sögn Finnboga kosta þessir bílar liðlega 1,5 milljón krónur hjá Jötni. 


Þátturinn Avinnulífið er frumsýndur á þriðjudagskvöldum á Hringbraut kl. 21.00, en einnig er hægt að skoða klippur úr honum neðar á forsíðunni á hringbraut.is, svo og þáttinn í heild sinni udnri sjónvarpsflipanum..