Rafbílar hlaðnir á 10 mínútum?

Rafbílar gætu innan skamms náð sömu drægni og venjulegir bensín- og díselbílar. Rannsóknir á nýrri rafgeymatækni við Bristol og Surrey háskóla benda líka til þess að hægt væri að fullhlaða batteríin á 10 mínútum.

Þessi tegund rafhleðslu hefur þó þann ókost að hún geymist ekki lengi. Hleðsla í óhreyfðum bíll með svona geymi myndi renna út af honum á einum mánuði. Tæknin er enn á tilraunastigi. Rafhlaðan sem prófuð hefur verið er aðeins 10 rúmsentimetrar og ekki er ljóst hvort hagkvæmni næst í stærri og fjöldaframleiddum útgáfum af henni.

Frétt The Guardian um nýju tæknina.