Veita skal opinbera styrki til uppbyggingar innviða fyrir rafbíla. Nánar á www.atvinnuvegaraduneyti.is
Þetta er hluti af sóknaráætlun Íslands í loftslagsmálum. Sú áætlun var sett fram í tengslum við 21. samráðsfund aðildarríkja loftlagssamningsins í París. Samnungurinn sem nefndur er COP21.
Verkefnið hefur það markmið að styrkja og treysta innviði fyrir rafbíla á landsvísu.
Þannig er tryggt aðgengi sem flestra landsmanna að loftslagsvænum ökutækjum.
Sextán verkefni hljóta styrki sem ráðstafað verður í þrjú ár og er heildarupphæðin 201 milljón króna.
Þetta þýðir tvöhundruð nýjar hleðslustöðvar fyrir rafbíla á þremur árum.
Í dag eru þrettán rafbíla hleðslustöðvar á Íslandi. Eru þær allar á vegum Orku náttúrunnar. Nánar á www.on.is
Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda segir að ökumenn setji fyrir sig hversu langt má aka á einni hleðslu rafbíla og hvernig ökumenn rafbíla komast klakklaust á milli hleðslustöðva á nótt sem degi.
Með tilkomu hleðslustöðva batnar aðgengi ökumanna og þeir verða öruggir með að fá hleðslu. Nánar á www.ruv.is
Rafbílar eru það sem koma skal!