Rætt um útrás kínverja og rússa

Einar Benediktsson fyrrverandi sendiherra til áratuga verður einn gesta Páls Magnússonar á Þjóðbraut í kvöld en fáir landsmenn eru betur að sér í þróun utanríkismála á síðustu öld og fram á þá yfirstandandi en Einar sem kominn er á níræðisaldur.


Einar mun sérstaklega dvelja við þá breyttu heimsmynd sem blasir við eftir að Kínverjar og Rússar hafa náð þvílíkum styrk, ekki síst á sviði heimsviðskipta, að Vesturlönd hljóta að fara að hugsa sinn gang. Einar hefur kynnt sér þessi mál í þaula og er óspar á skoðanir sínar á heimsyfirráðastefnu þessara austurvelda.


Þá munu foringjar opinberra starfsmanna setjast við gráa borðið hjá Páli Magnússyni, þau Þórunn Sveinbjarnardóttir formaður Bandalags háskólamanna og Ólafur G. Skúlason formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og meta stöðuna í kjaradeilu sinni við ríkið en þar situr allt fast og engar formlegar viðræður hafa verið boðaðar á næstu dögum, en verkfall BHM hefur staðið yfir í rétta tvo mánuði í lok þessarar viku. Forkólfar BHM hafa lýst viðræðum ríkisins við bandalagið sem sýndarviðræðum.


Þjóðbraut er frumsýnd klukkan 20.00 á Hringbraut í kvöld.