Rætt um sérstöðu kynferðisbrota

Eru kröfur um sönnun í kynferðisbrotamálum of strangar? Þetta er meginspurningin í sjónvarpsþættinum Lög og réttur á Hringbraut í kvöld, en í þáttunum er ávallt svarað einni mikilvægri spurningu sem varðar lög og rétt.

Í þættinum í kvöld fær lögmaðurinn Jónas Örn Jónasson til sín Svölu Ísfeld, dósent við lagadeild Háskóla Reykjavíkur til að ræða nýlegan dóm í kynferðisbrotamáli þar sem ákært var fyrir hópnauðgun, svo og að ræða það hvort dómstólar geri of strangar kröfur um sönnun í kynferðisbrotamálum. 

Svala er sérfróð í þessum málum og mun í þættinum sérstaklega fjalla um þá nýlundu að verjendur meintra gerenda í kynferðisbrotamálum hóti málsókn vegna rangra sakargifta á meðan á rannsókn stendur yfir.

Lög og réttur er á dagskrá Hringbrautar öll miðvikudagskvöld klukkan 20:45.