Iðnþingi Samtaka iðnaðarins sem fram fer í dag kl. 14.00 munu leiðtogar fyrirtækja, sérfræðingar og ráðherrar ræða saman um samkeppnishæfan iðnað á grunni menntunar, nýsköpunar og framleiðni. Þar verður sjónum ekki síst beint að því hversu framleiðni er lág hér á landi samanborið við nágrannaþjóðir. Hefur meðal annars verið bent á það að þótt Norðmenn, næstu nágrannar Íslendinga, vinni styttri vinnudag en þekkist á Fróni, sé framleiðni þar fimmtungi meiri en hér á landi.
Á þinginu verða rædd þau tækifæri sem felast í aukinni framleiðni í íslenskum iðnaði, en ljóst má vera að svigrúm til umbóta er mikið. Forvígismenn Samtaka iðnaðarins segja í því efni að vöxtur framtíðarinnar þurfi að byggjast á betri nýtingu hráefna, lágmörkun birgða, skilvirkum flutningum, nýtingu nýrrar tækni, betri menntun og skynsamlegri stjórnsýslu, en þegar það fari allt saman bresti á með nýrri iðnbyltingu.
Rætt um næstu iðnbyltingu
Fleiri fréttir
Nýjast