Grínarar gys.is sem hafa að leiðarljósi að gera napran veruleikann spaugilegan hafa gert sér mat úr viðtali Stöðvar 2 í fyrradag við Sigurð Einarsson, Ólaf Ólafsson og Magnús Guðmundsson, fanga á Kvíabryggju.
Fyrirsögn grínpistils dagsins er: \"Ræningjarnir 3 ráðnir til 365\" en í undirfyrirsögn segir: Óljóst hverjum verður sagt upp í staðinn.
Segir svo í léttum dúr í frétt dagsins á gys.is:
„Hinir margfrægu ræningjar úr Kardemommubæ, þeir Kasper, Jesper, og Jónatan, hafa verið ráðnir sem þáttastjórnendur hjá 365 miðlum, og munu framvegis sjá um þáttinn „Kardemommubærinn í dag“.
Handritshöfundur þáttanna og sérlegur ráðgjafi ræningjanna verður sjálfur höfundur Kardemommubæjarins, Þorbjörn Egner Þórðarson.
Eftir sem áður verður helsta takmark þáttarins að reyna að koma í veg fyrir að áhorfendur skipti yfir á RÚV, þar sem þeir gætu orðið vitni að raunverulegum fréttaflutningi.
En efnistökin verði þó með breyttu sniði, þar sem þátturinn mun héðan í frá eingöngu snúast um það að koma sjónarmiðum ræningja á framfæri við áhorfendur.“
Sjá allan pistil gys.is hér en margir hafa deilt gríninu í dag.