Ráðleggur davíð ekki um bessastaði

Jón Steinar Gunnlaugsson fv. hæstaréttardómari segist ekkert vita um áform Davíðs Oddssonar ritstjóra Morgunblaðsins og fv. forsætisráðherra varðandi hugsanlegt framboð til embættis forseta Íslands.

Hann segist hvorki mundu ráða honum af né á í þessu efni en þetta hafi ekki verið til neinnar umræðu þeirra í milli. J

Jón Steinar segir hins vegar að vakið hafi athygli sína að ýmsir frambjóðenda virðist ekki átta sig fyllilega á eðli embættisins og furðar sig ekki á að kallað sé eftir reynslumiklum frambjóðendum í komandi forsetakjöri.  Þetta kemur fram í samtali Jóns Steinars Gunnlaugssonar við Ólafana en þáttur þeirra verður sýndur í kvöld kl. 20.30 og endursýndur kl. 22.30. Þættir Ólafanna eru vikulega á dagskrá Hringbrautar.