Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar, segir þjóðina myndu standa miklu betur að vígi hefði aðildarviðræðum verið haldið áfram. Þá væri nú verið að ræða um raunverulega hagsmuni en ekki túlkun og hártoganir á bréfi utanríkisráðherra. Þetta kom fram í máli hans í sjónvarpsþættinum Heimsljósi á Hringbraut í gærkvöld, en þátturinn er helgaður fréttaskýringum um þau mál sem eru efst á baugi hverju sinni. Hægt er að nálgast klippur úr honum hér neðar á forsíðu vefjarins.
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, sagði í þættinum að Evrópumálin hefðu verið það mikilvæg í kosningabaráttunni 2009 að landsþing flokksins hefði samþykkt að fara í umsóknarferli og láta þjóðina velja um kosti þess og galla. Hreyfing sín væri enn afdráttarlaus í þeirri skoðun að þjóðin eigi að hafa síðasta orðið um jafn veigamikið mál og umsókn um Evrópusambandsaðild er.
Guðmundur og Katrín hafa ásamt formönnum hinna tveggja stjórnarandstöðuflokkanna, Árna Páli Árnasyni og Birgittu Jónsdóttur lagt fram ályktun á Alþingi þess efnis að þjóðin fái að kjósa um áframhald samningaviðræðna við ESB í september í haust.