Vilhjálmur Egilsson, rektor Háskólans í Bifröst og fyrrverandi alþingismaður, segir skýringua á að lögreglunámið verði á Akureyri og að Háskólinn á Bifröst hafi dæmst úr leik í kapphlaupin ráðast af persónulegum hagsmunum Illuga Gunnarssonar menntamálaráðherra.
Vilhjálmur nefnir tvær ástæður máli sínu til stuðnings. Sú fyrri er að þingmenn Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi hafi átt meiri hönk upp í bakið á Illuga ráðherra en þingmenn flokksins í Norðvesturkjördæmi. Hin ástæðan, sem kemur til greina, er sú staðreynd að Björn Teitur Einarsson, mágur Illuga, sækist eftir forystusæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi og því hafi Illugi ekki viljað að lögreglunámið yrði að Bifröst, sem hefði verið hægt að túlka sem sigur þingmanna kjördæmisins.
Vilhjálmur sagðist sannfærður um að ef Illugi hefði ætlað í framboð í Norðvesturkjördæmi væri lögreglunámið að Bifröst.
Vilhjálmur Egilsson er í viðtali í Þjóðbraut klukkan 21:30 í kvöld, ásamt Guðlaugu Kristjánsdótturm forseta bæjarstjórnar Hafnarfjarðar.