Óhætt er að segja að tónlistar- og athafnamaðurinn Jakob Frímann Magnússon hafi tekið sjálfan sig til kostanna í afskaplega fjörlegu viðtali í sjónvarpsþættinum Mannamáli á Hringbraut í gærkvöld. Þar fór hann á þeysireið yfir litríkan ferilinn frá menntaskólaárunum á sjöunda áratug síðustu aldar til fertugs afmælistónleika plötunnar goðsagnakenndu Sumars á Sýrlandi, en tónleikar í tilefni þess standa fyrir dyrum í Hörpu. Varla er hallað á nokkurn hluta viðtalsins ef sagan af versta giggi Stuðmanna er nefnd hér sérstaklega, en þar er sannarlega komið versta ball hljómsveitarinnar í stórkostlegri lýsingu Jakobs sjálfs. Hann talaði einnig um sérstakt uppeldi sitt, konurnar í lífi sínu, svo og vímuefnin sem einhverra hluta vegna áttu aldrei hug hans allan, þrátt fyrir að hann eigi vissulega kyn til þess að falla fyrir fíkninni. Kannski að skýringin sé einfaldlega sú að tónlistin hafi reynst honum besta dópið þegar upp er staðið.
Þátturinn var frumsýndur í gærkvöld, en verður endursýndur í dag á völdum tímum, en klippur úr honum er hægt að nálgast hér neðar á síðunni, svo og þáttinn í heild sinni undir sjónvarpsflipanum.