Óhætt er að segja að þjóðargersemið Bryndís Schram fari með himinskautum í samtali sínu við Sigmund Erni Rúnarsson í þættinum Mannamáli á Hringbraut í kvöld. Þar ræðir hún líf sitt og örlög af fádæma hispursleysi, meðal annars dótturmissinn á afar einlægan hátt, en þau Jón Baldvin misstu Snæfríði dóttur sína fyrir réttum tveimur árum. En Bryndís slær líka á létta strengi og er til dæmis alls ófeimin að ræða allar kjaftasögurnar um meint kvennafar á karli sínum; einna vænst þyki henni langlíft bullið um samband hans og Agnesar blaðakonu Bragadóttur á Mogganum. Þau þrjú séu perluvinir frá árunum sem þau bjuggu öll á Ísafirði. Þegar móðir Agnesar hafi látist hafi Bryndís mætt í jarðarförina af virðingu við Agnesi vinkonu sína, en Jón Baldvin verið staddur þá erlendis.
Og Bryndís segir að andlitið á flestum kirkjugestum hafi svo gott sem hrunið í gólfið þegar hún gekk inn; sú væri nú köld og kræf að mæta einsömul í útför móður viðhalds karlsins síns!
Horfðu á klippur úr þætti kvöldsins hér:
Þátturinn Mannamál var frumsýndur kl. 21.00 í gærkvöld á sjónvarpsstöðinni Hringbraut.