Ræddi árásina sem breytti lífssýn hans

Knattspyrnugoðsögnin Guðni Bergsson var gestur Sigmundar Ernis Rúnarsson í Mannamáli í gærkvöld og gerði þar upp árin sín í atvinnumennsku í knattspyrnu. Hann sagði kostulega sögu um það hvernig hann komst á mála hjá Tottenham þegar einungis 12 útlendingar voru á mála hjá enskum liðum, ræddi árin hjá Bolton sem hefðu ef til vill getað orðið fleiri, meiðslin sem skiluðu honum prófi í lögfræði - og síðast en ekki síst fjallaði hann með ítarlegum hætti um daginn sem breytti lífssýn hans en þá laumaði ógæfumaður sér inn á lögfræðistofuna sem Guðni vinnur á og réðst á starfsfélaga hans með hnífi og særði hann nánast til ólífis áður en Guðni skarst í leikinn og hafði manninn undir.


Þátturinn var frumsýndur klukkan 21.00 í gærkvöld á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í opinni dagskrá, en klippur úr honum er að finna neðar á forsíðunni á hringbraut.is, svo og þáttinn í heild sinni undir sjónvarpsflipanum. 


Horfa á brot úr þættinum hér: