Ræddu sæstreng milli íslands og bretlands

David Cameron, forsætisráðhersa Bretlands og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra Íslands lýstu báðir yfir áhuga sínum á lagningu sæstrengs milli Íslands og Bretlands á fundi sínum í Reykjavík í gærdag.

Á fundinum, sem haldinn var í Alþingishúsinu virtist Cameron vera mjög áfram um þessa framkvæmd sem hefur verið lengi á teikniborðinu, en ef af henni verður myndu Íslendingar selja Bretum verulegt magn af raforku, en hún er af skornum skammti á Bretlandseyjum.

Ráðherrarnir sammæltust um það á fundinum að setja á laggirnar vinnuhóp sem verður falið að skoða möguleika þess að leggja sæstreng milli Íslands og Bretlands, en hann á að skila tillögum sínum eftir hálft ár. Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs, segir í samtali við fréttastofu RÚV í morgun að hópnum verði meðal annars falið að skoða mögulegt verð, mögulegt magn og svo praktíska hluti.

Nýlega skilaði ráðgjafarhópur iðnaðar- og viðskiptaráðherra um lagningu sæstrengs til Evrópu tillögum sínum til Ragnheiðar Elínar Árnadóttur iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Ráðgjafarhópurinn var samhljóða í sinni ályktun að það þurfi frekari upplýsingar til að unnt sé að fullyrða um þjóðhagslega hagkvæmni þess að leggja sæstreng milli Íslands og Bretlands. Lagt er til að haldið verði áfram að kortleggja alla þætti verkefnisins hér innanlands um leið og leitað verði svara um möguleg rekstrar- og eignarhaldsmódel hjá viðsemjendum í Bretlandi.