Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu verður gestur Harðar Snævars Jónssonar í fótboltaþættinum 433 á Hringbraut í kvöld og mun ræða þar um komandi og krefjandi verkefni liðsins.
Kvennalandsliðið hefur ekki vakið síður mikla athygli og karlalandsliðið fyrir góðan árangur sinni úti á velli, en liðið er á meðal þeirra bestu í Evrópu um þessar mundir og skákar þar stallsystrum sínum á Norðurlöndunum svon eftir er tekið.
Freyr ræðir um undankeppni EM sem stelpurnar eru að byrja og hversu miklu erfiðara það er í kvennaboltanum að nálgast upplýsingar um liðið en hjá körlunum.
Þá fagnar hann árangri karlalandsliðsins og þeirri umfjöllun sem liðið fær.
Í fyrri hlutanum er svo Þórarinn Ingi Valdimarsson leikmaður FH. Þórarinn er uppalin í Eyjum en ákvað að yfirgefa ÍBV fyrir tímabilið og gæti orðið Íslandsmeistari með FH á sunnudag.
Fótboltaþátturinn 433 er frumsýndur klukkan 21:30 ím kvöld og endursýndur strax klukkan 23:30.