Ræða um áframhald á samstarfi

Framsóknarflokkur, L-listi og Samfylkingin munu ræða um áframhaldandi meirihlutasamstarf í bæjarstjórn á Akureyri, segir á frétt á Rúv.is

„Við ætlum að gefa okkur tíma fram að mánaðamótum til að sjá hvort við náum ekki saman,“ segir Hilda Jana Gísladóttir, nýr oddviti Samfylkingarinnar á Akureyri.

Meirihlutaflokkarnir héldu hver sínum tveimur mönnum í bæjarstjórn. Sjálfstæðisflokkur tapaði tæplega þriggja prósenta fylgi en hélt þremur bæjarfulltrúum. Vinstri græn héldu sömuleiðis sínum eina fulltrúa.

Framsóknarflokkurinn er eini flokkurinn á Akureyri sem bætir við sig fylgi frá síðustu kosningum, alls vel yfir þremur prósentum.