Ræða trumps og störf þingsins

Ræðum við Stefaníu Óskarsdóttir stjórnmálafræðing er um stefnuræðu Donalds Trumps í gær eftir 40 daga í embætti. Ræðan var flutt fyrir báðum deildum þingsins - og ýmsir gestir sem forsetinn valdi fengu að mæta.

 Stefanía sem bjó um árabil í Bandaríkjunum og er menntuð þar ytra, segir að ummælið helstu fjölmiðla hafi verið jákvæð. Trump hafi haldið ræðu sem hann hefði átt að halda strax þegar hann tók við, segja sumir gagnrýnendur.

Sjáum einnig brot úr ræðunni og einnig af upptöku með Bernie Sanders, fyrrverandi kandídat í forsetaframboði þar sem hann bendir á það sem vantaði í ræðuna og margt annað. 

Það verður erfitt að taka skaðann af launahækkun þingmanna til baka, þó að launin verði lækkuð. Þingmennirnir Birgitta Jónsdóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson og Ásmundur Friðriksson eru öll sammála um þetta. Þau verða gestir Þjóðbrautar í kvöld. Birgitta segir vinnubrögð meirihlutans hafa versnað frá síðasta kjörtímabili ef eitthvað sé. Þá segir Sigurður Ingi að allt sé í góðu milli hans og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, þó að  vissulega muni það taka tíma að láta sárin gróa.