Valgerður Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem gegndi stöðu þingforseta nú á 3ja tímanum í dag sló hamri í bjöllu og gerði hlé á ræðu Ólínu Þorvarðardóttur þegar Ólína ræddi fjáraukalögin í dag.
Ástæðan var ummæli Ólínu í þingræðu um glottið á andliti Vigdísar Hauksdóttur, formanns fjárhaganefndar, þegar Ólína ræddi fjáraukalög.
Valgerður gerði þá fyrra hlé af tveimur á þingræðu Ólínu og áréttaði mikilvægi áhrifa orða.
Ólína svaraði að glottið á þessum þingmanni væri alvarlegt mál.
Þá barst framíkall frá Vigdísi og gerði þá Valgerður þingforseti aftur hlé á ræðunni og bað báða þingmenn að gæta tungu sinnar.
Ólína sagðist halda áfram með ræðuna með þeim orðum sem hún kysi að velja.