Ráðuneyti lét 158 milljónir í óljós verk

Ríkisendurskoðun gerir alvarlegar athugasemdir við ríflegar greiðslur menntamálaráðuneytisins til einkahlutafélagsins Rannsóknir og greining án þess að fyrir liggi viðunandi samningar um verkefni félagsins. Í stjórnsýsluúttektinni, sem er nýlokið, er ráðuneytið ekki aðeins gagnrýnt harkalega fyrir að hafa látið félaginu í té þessar fjárhæðir án útboðs heldur og er fundið að því að ekki sé hægt að meta hvort ráðuneytið hafi verið að gera þjónustusamning við umrætt félag eða hreinlega verið að styrkja það með þessum fjárútlátum.


Í úttekt Ríkisendurskoðunar kemur fram að einkahlutafélagið hafi á síðustu 16 árum fengið alls 158 milljónor króna úr sjóðum menntamálaráðuneytisins fyrir margvíslagar æskulýðsrannsóknir án þess þó að vitað sé hverju þær hafi skilað fyrir ríkið. Þar af fékk félagið um 50 milljónir króna frá ráðuneytinu árið 2006 án útboðs og framhjá lögum um opinber innkaup.


Ríkisendurskoðun beinir þeim eindregnu tilmælum til ráðuneytisins að vanda sig betur við samningsgerð af þessu tagi og segir heildstæða stefnu skorta um æskulýðsrannsóknir hér á landi.