Sjálfstæðisflokkurinn fær sex ráðherra, Viðreisn fær þrjá og Björt framtíð tvo. Formenn flokkanna þriggja sem leiða nýjar ríkisstjórn sögðu frá þessu á blaðamannafundi áðan. Þar kynntu þeir, Bjarni, Benedikt og Óttarr stjórnarsáttmálann.
Sjálfstæðisflokkurinn fær forsætisráðuneytið, utanríkisráðuneytiö, ráðuneyti ferðamanna-, iðnaðar- og nýsköpunarmála, menntamálaráðuneytið og innanríkisráðuneytið en því verður skipt í tvennt: annars vegar ráðuneyti dómsmála og hins vegar ráðuneyti samgöngu-, fjarskipta- og sveitarstjórnamála.
Viðreisn mun stýra fjármálaráðuneytinu, félagsmálaráðuneytinu og landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytinu. Björt framtíð fær heilbrigðisráðuneytið og umhverfisráðuneytið. Utan þremenninganna er ekki ljóst enn hvaða þingmenn munu stýra ráðuneytinum.
Ekki hefur enn verið ákveðið hvernig formennska í þingnefndum mun skiptast á milli þingflokkanna.