Ráðstöfunartekjur jukust um 6,5%

Kaupmáttur ráðstöfunartekna á hvern Íslending að meðaltali jukust um 4,4% milli áranna 2013 og 2014 samkvæmt tölum sem Hagstofan kynnti í dag.

Ráðstöfunartekjur heimilanna jukust árið 2014 um 7,7% frá fyrra ári. Ráðstöfunartekjur á mann jukust um 6,5% milli ára og kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann jókst um 4,4%.

 Ráðstöfunartekjur heimilanna má skilgreina sem samtölu launatekna, eignatekna, tilfærslutekna og reiknaðs rekstrarafgangs einstaklingsfyrirtækja en að frádregnum eigna- og tilfærsluútgjöldum, segir í upplýsingum frá Hagstofunni.

Tölurnar eru að mestu byggðar á skattframtölum einstaklinga.