Auglýsing í Bændablaðinu hefur vakið nokkra athygli en þar er auglýst eftir ráðskonu. Það sem vekur athygli er að í auglýsingunni er ráðskonan sögð þurfa að leysa flókin viðfangsefni eins og að \"koma bónda á lappir\" og \"svæfa hann á kvöldin\", samhliða venulegum sveitarstörfum.
Það var Hermann Aðalsteinsson bóndi og útgefandi í Reykjadal sem vakti athygli á auglýsingu Bændablaðsins á facebook. Sumir telja auglýsinguna hnyttna en aðrir líta til jafnréttislegra sjónarmiða og eru ekki eins hrifnir.
\"Alltaf gaman að lesa Bændablaðið,\" segir Hermann.