Ráðríki hinna freku er hafnað

Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson kom víða við í áramótaárvarpinu. Um áramót líta menn um öxl og rifja upp atburði ársins. Forsetinn talaði um viðbrögð Íslendinga við láti ungrar konu Birnu Brjánsdóttur á liðnu ári og umræðum um valdníðslu og kynbundið áreiti og ofbeldi gegn konum.

Guðni sagði að kannski yrði nýliðins árs einkum minnst fyrir þau tímamót að konur fylktu liði gegn ofbeldi og sögðu hingað og ekki lengra og karlar tóku undir. Guðni sagði að Íslendingar eigi að standa samna um samfélag sem hafnar ráðríki hinna freku og áfergju þeirra sem þykjast geta komist upp með hvað sem er.

Nánar http://forseti.is/media/3015/2018 01.01aramotaavarp.pdf    

[email protected]