Formaður Samfylkingarinnar segir ráðleysi ríkisstjórnarinnar í málefnum Rússlands blasa við. Sérkennilegt sé að sjá forystumenn ríkisstjórnarinnar ljá máls á því að skipta megi um afstöðu til alþjóðamála eftir því hvort hafa megi eitthvað upp úr því eða ekki.
Þetta kemur fram í fréttum RÚV í kvöld, en þar er fjallað um óeiningu innan stjórnarflokkanna þegar kemur að áframhaldandi stuðningi við þvingunaraðgerðir gegn Rússum. Fjármáalaráðherra sé efins og sjávarútvegsráðherra segi að haga þurfi seglum eftir vindi á meðan utanríkisráðherra standi fast á ákvörðun sinni um að fylgja vestrænum lýðrlæðisríkjum að málum.
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, segir ráðleysi ríkisstjórnarinnar blasa við í þessu máli. Hver togi í sína áttina: \"Það er mjög sérkennilegt,\" segir hann \"að sjá forystumenn ríkisstjórnarinnar ljá máls á því að það sé í boði fyrir Ísland að skipta um afstöðu til alþjóðamála eftir því hvort við getum haft eitthvað uppúr því eða ekki.“