Ráðist á geir, heimilislausan mann, á hringbraut: „svo tekur hann mig með löggutaki, stór og sterkur maður“

Ekið var á heimilislausan mann á gatnamótum Hringbrautar og Bræðraborgarstígs. Maðurinn heitir Geir Júlíus Harrysson. Geir Júlíus er heimilislaus og var hann á leiðinni yfir götuna, með kerru fulla af flöskum sem hann hafði safnað, þegar ekið var á hann. Geir er tveggja barna faðir og öryrki sem missti íbúð sína í vor. Hann hefur síðan þá búið á götunni.

Fréttablaðið greindi frá því í gærkvöldi að ekið var á hjólreiðamann á gatnamótum Hringbrautar og Bræðraborgarstígs. Hjólreiðamaðurinn heitir Geir Júlíus Harrysson og er heimilislaus. Geir Júlíus sagði í samtali við Fréttablaðið.

Geir Júlíus var á leið út í Sorpu með flöskurnar þegar ekið var á hann. Geir var á hjóli með kerru og við áreksturinn dreifðust flöskurnar um alla götuna. Ökumaðurinn ætlaði að halda för sinni áfram en þá kastaði Geir flösku í átt að bílnum sem braut afturrúðuna. Þá skipti engum togum en að maðurinn stökk út úr bílnum og réðst á Geir Júlíus. Geir sagði í samtali við Fréttablaðið:

„Hann hleypur á eftir mér. Svo tekur hann mig með löggutaki, stór og sterkur maður. Hann fór að kýla mig í rifbeinin og hélt mér með taki.“

Vitni urðu að stöðva manninn og var honum haldið þar til lögregla kom á vettvang. Geir segir að hann ætli ekki að leggja fram kæru. Maðurinn hafi borgað honum 2000 krónur og hann sjálfur fengið 4000 þúsund fyrir flöskurnar. Þeir hafi náð að sættast. Aðspurður hvað taki við og hvar hann gisti svaraði Geir:

 „Það gæti verið í bílakjallaranum í Glæsibæ, bak við Hagkaup í Skeifunni, bekk í Húsdýragarðinum eða úti í skógi í Elliðaárdalnum.“

Ítarlega er fjallað um málið á vef Fréttablaðsins.