Ráðist á 12 ára stúlku: var á leið heim úr skóla

Faðir 12 ára stúlku tilkynnti til lögreglu fyrr í dag að ráðist hafi verið á dóttur hans á leið heim úr skóla. Hlaut stúlkan áverka í andliti. Stúlkan gat gefið lögreglu greinargóða lýsingu á atvikinu og ofbeldismanninum. Hann var einn á ferð og árásin tilefnislaus. tvikið átti sér stað á svæði lögreglustöðvar tvö sem er Hafnarfjörður, Garðabær og Álftanes. Málið er í rannsókn.

Þá greinir lögregla frá því að tilkynnt hafi verið um slagsmál milli tveggja ungra kvenna í hverfi 108. Þegar lögregla kom á vettvang voru konurnar hættar en ásakanir gengu á víxl en um minniháttar áverka var að ræða.

Þá var tilkynnt um tvo ölvaða unglinga við skóla í Árbæ. Þegar betur var að gáð kom í ljós að um karlmenn á þrítugsaldri var að ræða. Héldu þeir sína leið eftir afskipti lögreglu.