Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari Sjálfstæðisflokksins, vill láta skoða hvort vilji sé fyrir því að ráðherrar í ríkisstjórnum séu ekki á sama tíma sitjandi þingmenn.
Þetta kom fram í fréttatengda umræðuþættinum Kvikunni sem sýndur var á Hringbraut í gærkvöld, en þátturinn verður endursýndur í dag og svo aftur á föstudagskvöld, auk þess sem sjá má hann hér á vef stöðvarinnar.
Þar lýsir ritari Sjálfstæðisflokksins þeirri skoðun sinni að betra stjórnsýslufyrirkomulag kunni að felast í að viðkomandi meirihlutaflokkar í ríkisstjórn á hverjum tíma velji sér pólitíska ráðherra utan þingmannahópsins en þó kýs hún ekki hlutlausa fagráðherra eins og t.d. þegar Ragna Árnadóttir og Gylfi Magnússon urðu ráðherrar í vinstri stjórninni.
Áslaug Arna segir málið ekki til beinnar skoðunar á þessu stigi innan Sjálfstæðisflokksins en útilokar ekki að hún muni leggja sitt fram til þess, umræða um þetta kvikni reglulega meðal flokksmanna.
Tilefnið að ummælum ritara Sjálfstæðisflokksins er sú staðreynd að almenningur ber lítið traust til stjórnmálamanna en Kvikan í kvöld hverfist um þá þversögn að árið 2015 var einkar átakasamt ár og fengu stjórnvöld litlar þakkir frá almenningi í fylgiskönnunum þrátt fyrir efnahagsbata og rýmri kjör margra hópa.
Ásdís Thoroddsen kvikmyndagerðarkona segir í þættinum að til skammar sé að ekki sé hugað betur að kjörum tekjulágra hópa. Sameiginlegum arði þjóðarinnar sé gróflega misskipt.