Ráðherrar sýni á spilin

Margrét Kristmannsdóttir framkvæmdastjóri og Jón Magnússon lögmaður mættu í Þjóðbraut á Hringbraut í morgun. Þau töluðu meðal annars um Panamaskjölin og það sem þegar hefur verið upplýst úr þeim.

Bæði vilja þau að kjörnir fulltrúar, hið minnsta, geri fullkomlega grein fyrir stöðu sinni hafi viðkomandi átt félag í aflandi.

Jón sagði merkilegt að svo virtist sem enginn, sem bent hefur verið á, hafi kannast við að eiga félag í skattaskjóli en á sama tíma muna allir eftir að hafa greitt alla skatta af þessum sömu félögum.