Ráðherrar puntudúkkur einkafyrirtækja

Benedikt Jóhannesson, stofnandi Viðreisnar og fyrrverandi fjármálaráðherra fer háðulegum orðum um nýja ríkisstjórin í Morgunblaðsgrein í dag, segir hana verkalausa og vera einkum og sér í lagi puntudúkku einkafyrirtækja.

\"Allt of oft gleymist að þakka fyrir það sem vel er gert. Því væri ánægjuefni að geta þakkað ríkisstjórninni fyrir vel unnin störf, en þegar litið er yfir feril hennar sést að það er ómögulegt, því stjórnin hefur nánast ekkert gert. Og þó. Hún hefur horfið frá stefnu fyrri stjórnar um að lækka almennan virðisaukaskatt. Hún hefur hægt á markmiðum fyrri ríkisstjórnar um að minnka hlut mengandi eldsneytis. Hún hefur ákveðið að hækka fjármagnstekjuskatt um 10%. Hún hefur dregið úr aðhaldi í ríkisfjármálum, þannig að peningastefnunefnd Seðlabankans treystir sér ekki til þess að halda áfram vaxtalækkunarferlinu sem stóð allt síðasta ár og hafði boðað framhald á miðað við fyrri fjármálaáætlun. Og hún ákvað að hafa kampavín í lægra skattþrepi en bjór, enda ekki að ástæðulausu nefnd kampavínsstjórnin. Ekkert af þessu er ástæða til þess að þakka.“

Og Benedikt er samt fullur þakklætis:

„Ráðherrarnir hljóta samt að hafa gert eitthvað fleira en mæta sem auglýsingaefni fyrir einkafyrirtæki. En þó að grannt sé leitað finnst ekkert. Og það er einmitt ljósi punkturinn. Ég vil því þakka ríkisstjórninni fyrir verkleysi. Öllum er ljóst að þessi ríkisstjórn var mynduð utan um fortíðina. Stefnt er að því að lækka aðgangseyrinn að náttúruauðlindum og gæta þess vel að markaðslögmálin fái ekki að ráða verðinu. Stefnt er að því að draga Ísland smám saman út úr samstarfi Evrópuþjóða og fylgja feigðarflani Breta. Stefnt er að því að tryggja að hagsmunir neytenda verði fyrir borð bornir í landbúnaðarmálum. Verkleysi ríkisstjórnarinnar er þess vegna lofsvert.“