Ráðherrar fá 100.000 króna hækkun

Kjararáð hefur hækkað laun ráðherra frá 1. mars sl. um hundrað þúsund krónur á mánuði eftir því sem fram kemur í Fréttablaðinu í dag.

Laun forsætisráðherra eru nú um 1.4 milljónir á mánuði.

Kjararáð ákvarðar laun embættismanna og kjörinna fulltrúa.

Fram kemur í Fréttablaðinu að formaður Verkalýðsfélags Akraness gagnrýni prósentuhækkun sem stuðst sé við. Kallar formaðurinn málið mikið óréttlæti.