Ritstjórar vefmiðlanna sem voru gestir í samnefndum þætti á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í vikunni voru á einu máli um mikilvægi þess að ráðherrar í ríkjandi stjórn ferðuðust sem mest til útlanda.
Í þættinum ræddu þau Magnúr Geir Eyjólfsson ritstjóri Eyjunnar, Jón Trausti Reynisson ritstjóri Stundarinnar og Þórunn Elísabet Bogadóttir aðstoðarritstjóri Kjarnans um fréttamál líðandi stundar, meðal annars meinta ferðagleði ráðamanna sem hafa farið í 158 utanferðir að andvirði 160 milljóna króna á fyrri helmingi yfirstandandi kjörtímabils, þar af utanríkisráðherra sínu oftast, sem eðlilegt má teljast en iðnaðarráðherra einnig svo skiptir tugum skipta.
Ritstjórarnir höfðu allir á orði að þessum ráðamönnum væri beinlínis hollt að auka víðsýni sína með utanferðum af þessu tagi sem margar hverjar væru þjóðinni vissulega mikilvægar en aðrar ef til vill meira til skemmtunar en af ástæðum sem vörðuðu beina hagsmuni þjóðarinnar.
Einmitt þessi ríkisstjórn þyrfti að hugsa meira út á við en inn á við, nóg væri komið af þjóðernisrembingnum og heimóttarskapnum og þess í stað væri beinlínis nauðsynlegt fyrir hana að læra af öðrum þjóðum, ekki einungis hvernig eigi að reka samkeppnishæf samfélög heldur og hvernig haga beri störfum þjóðþinga svo bragur sé að.
Tveir ráðherrar ríkisstjórnarinnar eru hvað heimakærastir. Sigrún Magnúsdóttir hefur aldrei farið utan í ráðherratíð sinni og Kristján Þór Júlíusson fimm sinnum, en aðrir hafa allir farið oftar en tíu sinnum til útlanda það sem af er kjörtímabilinu.