Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra sagði á ársfundi Landspítalans í gær að í sínum huga væri engin spurning um að nýr Landspítali rísi á lóð hans við Hringbraut. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðhera sagði hins vegar við sama tækifæri að nýr Landspítali hefði ekki verið samþykktur og að staðsetning nýs spítala væri ekki frágengin.
Sigmundur Davíð hefur viðrað þá skoðun sína að reisa nýjan Landspítala á lóð Ríkisútvarpsins í Efstaleiti, en hugmyndinni hefur verið nokkuð fálega tekið, ekki síst af háskólasamfélaginu og yfirstjórn Landspítalans. Þá er einnig augljóst af orðum heilbrigðisráðherra í gær að þar á hann við andstæðing í málinu að etja.
Ummæli Sigmundar Davíðs eru athyglisverð í ljósi þess að þrír síðustu heilbrigðisráðherrar Framsóknarflokksins, þau Siv Friðleifsdóttir, Jón Kristjánsson og Ingibjörg Pálmadóttir voru öll eindregnir málsvarar þess að reisa nýjan Landspítala á lóð hans við Hringbraut.
Orð forsætisráðherra eru einnig á skjön við ríkisfjármálaáætlun stjórnarinnar þar sem segir að fyrir árslok 2017 verði búið að reisa sjúkrahótel og hanna meðferðarkjarna við nýjan Landspítala við Hringbraut.