Á sama tíma og fram hefur komið í fréttum að erfiðlega gangi að finna strætóbóbílstjóra - og er skemmst að minnast þess að á Akureyri eru dæmi um að aksturleiðir hafi verið lagðar af tímabundið þar sem ekki hefur gengið að ráða vagnstjóra til starfa, virðast bílstjórar ráðherranna hvergi á flæðiskeri staddir þegar kemur að mánaðarlaunum.
Eftir því sem fram kemur á spyr.is greiða ráðuneytin samtals ríflega 90 milljónir króna á ári í laun og launatengd gjöld, fyrir bílstjóra ráðherra. Þetta þýðir að bílstjórar ráðherra eru að meðaltali með um 700-800 þúsund krónur í mánaðarlaun.
Í svörum ráðuneytanna kemur fram að ráðherrabílstjórar eru einnig í hlutverki öryggisvarða fyrir ráðherra og sinna auk þess ýmsum erindum fyrir ráðuneytið. Má þar nefna rekstrarviðhald á húsnæði, verkefni í skjalasafni, losun endurvinnslutunna, afleysingar í eldhúsi, ýmis innkaup og sendistörf. Nánar má lesa um launakostnað ráðherrabílstjóra, bifreiðar ráðherra og upplýsingar um starf, í svari frá hverju ráðuneyti fyrir sig á spyr.is en þar gefur að líta viðamikla úttekt á málinu í kjölfar gagnasöfnunar.
Þingfararkaup þingmanna er á bilinu 700.000- 800.000 krónur á mánuði en fram kemur í svörum ráðuneyta að yfirvinna sé drjúgur hluti launatekna ráðherrabílstjóranna.