Ráðherra sagður ráða engu eða öllu

Í sjónvarpsviðtali KVIKUNNAR, nýs fréttaskýringarþáttar á sjónvarpsstöðinni Hringbraut, kom fram hjá Fanneyju Björk Ásbjörnsdóttur, konu í Vestmannaeyjum, sem berst fyrir lífi sínu í von um að fá nýtt undralyf, Harvoni, sem 95% líkur eru á að myndu uppræta sjúkdóm hennar, að tveir þingmenn hefðu sérstaklega haft samband við Fanneyju vegna tregðu kerfisins að heimila henni aðgang að lyfinu. Annar þingmaðurinn hefði sagt að heilbrigðisráðherra réði engu. Hinn þingmaðurinn hefði sagt að heilbrigðisráðherra réði öllu.

Rannsókn KVIKUNNAR á málinu bendir til að síðari þingmaðurinn sé nær raunveruleikanum, að Alþingi og ráðherra hafi allt að segja um framtíð Fanneyjar Bjarkar, að hendur embættismanna í kerfinu séu bundnar, að ákvörðun um framtíð hennar sé 100% pólitísk. Á meðan rennur sandurinn hratt í hennar líftímaglasi þar sem lífsgæðin eru að hverfa vegna sjúkdómsins,  Ónæmiskerfii Fanneyjar er hrunið. Sjúkdóminum sem hún hefur burðast með í 32 ár án lækningar getur fylgt skorpulifur sem getur verið banvæn. Fanney kallar niðurstöðu Héraðsdóms þar sem hún tapaði máli sínu gegn ríkinu \"dauðadóm\". Lyfið kostar um 10 milljónir króna.

Í samtali KVKUNNAR við fyrrverandi heilbrigðisráðherra, Ögmund Jónasson, að loknum sjónvarpsþættinum kom fram að fyrst og fremst væri það pólitísk ábyrgð núverandi heilbrigðisráðherra, Kristján Þórs Júlíussonar, að útvega nægt fé úr almannasjóðum ríkisins til að reka heilbrigðiskerfi á grunni jafnaðar en ekki stéttaskiptingar eftir efnahag. Skattalækkanir ynnu gegn jöfnuði og kallaði Ögmundur ójafnræðið „hrikalegan heim“. Sjúklingar greiða nú 20% allrar þátttöku við kostnað heilbrigðiskerfisins samkvæmt rannsóknum.

Sjónvarpsþátt KVIKUNNAR um mál Fanneyjar má sjá í heild hér.

Sjálf hefur Fanney fengið mikil viðbrögð eftir sýningu þáttarins en hún segir að engin ný tíðindi hafi komið fram síðustu daga til bjargar hennar lífi.