Ráðherra vísar í ummæli á hringbraut

Stækkunardeild ESB segir það innanlandsmál hvort ESB-umsókn Íslendinga sé enn gildi eða ekki. Þrátt fyrir slitabréf Gunnars Braga Sveinssonar fyrir tæpu áru sem leiddi til mikilla mótmæla hér á landi og stórra yfirlýsinga.

Eftir því sem fram kemur í Morgunblaðinu í dag svarar stækkunardeild ESB því ekki hvort umsóknin frá 2009 sé enn í gildi.

Í frétt Moggans í dag vísar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra fyrirspurn blaðsins til svars sem hann gaf í sjónvarpsþætti á Hringbraut , þættinum Ólafarnir. Þar sagði hann að hann væri ekki sammála því að umsóknin sé í fullu gildi. „Við erum ekki umsóknarríki.“

Stjórnmálafræðingar hafa sagt að það geti haft mikil áhrif á störf og nálgun næstu ríkisstjórnar og lýðræðsilega framvindu hvort ESB lítur svo á sem umsókn Íslendinga sé enn í gildi.