Fjármála- og efnahagsráðuneytið telur að það yrði að „skaðlausu“ að veita fjármálafyrirtækjum heimild til að greiða tvöfalt hærri bónusgreiðslur en núverandi reglur kveða á um og þær megi því vera allt að 50 prósent af föstum árslaunum starfsmann. Þá mætti einnig skoða að smærri fjármálafyrirtækjum yrði leyft að greiða hlutfallslega enn hærri kaupauka til starfsmanna, til dæmis 100 prósent af árslaunum, heldur en stóru viðskiptabönkunum. Samkvæmt lögum sem nú eru í gildi mega bónusar starfsmanna fjármálafyrirtækja vera 25 prósent af föstum árslaunum þeirra.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í minnisblaði sem fjármála- og efnahagsráðuneytið sendi í gær til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis vegna frumvarps sem nefndin hefur til umræðu um breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki. Greint er frá efni bréfsins, sem er 28 blaðsíður, í DV í dag.