Ráðherra vill fjölga flóttafólki

Eygló Harðardóttir, félagsmálaráðherra kveðst vilja skoða hvernig hægt er að taka á móti fleiri flóttamönnum en þeim 50 sem stjórnvöld voru búin að samþykkja að taka við á næstu tveimur árum.

Ráðherrann segist fagna því hvað sveitarfélög í landinu virðast viljug til að taka við mörgum flóttamönnum, en mörg þeirra stærstu hafa lýst yfir vilja til að taka við tugum þeirra flóttamanna sem hafa verið að flýja ógnaröldina fyrir botni Miðjarðarhafs og fátæktina í austanverðri Afríku.

Fjöldi þingmanna, jafnt stjórnarliða og stjórnarandstæðinga hefur á síðustu dögum gagnrýnt stjórnvöld fyrir að taka við alltof fáum flóttamönnum - og hefur Elín Hirst, þingmaður Sjálfstæðisflokksins sagt að vel megi tífalda þann fjölda sem stjórnvöld hafa sagst vilja taka við á næstu misserum.

Unnur Brá Konráðsdótttir formaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis sagði í fréttum RÚV í hádeginu að hún vilji skoða allar leiðir svo hægt verði að taka við fleiri flóttamönnum en ráðgert var í fyrstu, en nefndin muni skoða þessi mál á næstu vikum.