Ráðherra vill einfalda kerfið

Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðarráðherra segir að húsnæðisreglukerfið á Íslandi sé of flókið og sé alls ekki sniðið að þeim veruleika sem blasir við í fasteignamálum hér á landi.

Þetta lætur ráðherrann hafa eftir sér í tilefni á ráðstefnu í dag um húsnæðismálin, þar sem leita á leiða til að hanna og útbúa einfaldari og ódýrari íbúðir fyrir ungt fólk sem er að koma sér fyrir á íbúðamarkaði. Þar er sem kunnugt er vandinn mikill. 

Ragnheiðir bendir á að húsnæðismálin tilheyri félagsmálaráðuneytinu, en eftirlitið tveimur öðrum ráðuneytum, iðnaðarráðuneytinu og umhverfisráðuneytinu og flækjustigið sé fyrir vikið all nokkurt. Þá bæti ekki úr skák að reglugerðir á þessu sviði séu mjög íþyngjandi og engan veginn í takt við þarfir dagsins. Hún bendir í því sambandi á að regluverkið í dag geri varla eða ekki ráð fyrir litlum og einföldum íbúðum, t.d. 50 fermetrum að stærð, en þær henti einmitt ungu fólki í byrjun. Reglur kveði hins vegar á um að öllum slíkum íbúðum verði að fylgja geymsla sem ungt fólk þarf kannski síst á að halda í upphafi búskapar, en við það hækki verð á íbúðunum mikið.