Dagur B. Eggertsson borgarstjóri var gestur í Þjóðbraut í gærkvöld, þar sem meðal annars var talað um hvernig væri unnt að koma til móts við sveitarfélög, sem hafa mikinn kostnað af fjölda ferðafólks, en litlar tekjur af ferðafólkinu. Dagur segir margar leiðir færar, en ekki væri annað sjá en að ráðherra skorti vilja til verka.
Dagur segir Reykjavík bera mun meiri kostnað af ferðafólki en tekjur. Sama eigi við um mörg önnur sveitarfélög. „Kjörtímabili ráðherrans er að ljúka án þess að nokkuð hafi verið gert,“ sagði Dagur.
Hann benti á að til höfuðborgarsvæðisins hafi runnið óverulegir peningar til uppbyggingu vegna ferðafólks á sama tíma og mest hafi runnið til verka á suðurlandi og á Reykjanesi. Þegar hann var spurður, hvort hann nefni þetta með þeim hætti þar sem þessi landshlutar eru í kjördæmi ráðherrans, Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, sagði það alls ekki vera. Hann hafi bara bent á þessa staðreynd.