Þetta kom fram í máli Illuga Gunnarssonar mennta- og menningarmálaráðherra í Síðdegisútvarpinu á Rás 2 í gærdag en þar ræddi hann lokun moskunnar í Feneyjum. Illugi sagði þar að sér fyndist hlutverk listar að einhverju leyti vera að ögra og vekja fólk til umhugsunar og sagði hann framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum einmitt hafa verið hannað til þess. Örlög mosku Christoph Büchel sendi hins vegar ákveðin skilaboð til listamanna og listaheimsins, en sem kunnugt er var afhelgaðri kirkju sem hýsti listaverkið lokað á sýningartímanum af borgaryfirvöldum.
Illugi sagði í viðtalinu að bæði trúmál og listir væru viðkvæm mál almennt. Honum fyndist að listamenn ættu að fá sem mest svigrúm í listsköpun sinni og taldir umræðu alltaf til góðs. "„Það er ennþá tækifæri til að opna moskuna, listaverkið, aftur og auðvitað vonast ég til þess," sagði Illugi. „Deilan hefur meðal annars snúist um það hvort þetta sé listaverk eða ekki.“ Illugi lítur svo á að moskan sé listaverk sama hvað fólki finnst um það.
„Það er ekkert nýtt að átök verði þar sem listin fer inn í trúmálin,“ sagði ráðherrann og minnti á mörg dæmi í þá veru.
Björg Stefánsdóttir, forstöðumaður Kynningarmiðstöðvar Íslenskrar myndlistar, segir að gætt hafi margskonar misskilnings varðandi framlag Íslands og að íslenski hópurinn hafi verið sakaður um hluti sem eiga ekki við nein rök að styðjast, eins og til dæmis að reka verslun sem er bannað. Í gær voru borgarstjórnarkosningar í Feneyjum sem Björg segir vel geta spilað inn í hvert framhaldið verður fyrir framlag Íslands á Tvíæringnum.