Ráðherra trúir enn á náttúrupassana

Helgi Hjörvarr þingmaður Samfylkingarinnar innti Ragnheiði Elínu Árnadóttur ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum í gær á Alþingi hvað væri að frétta af fyrirhugaðri gjaldtöku sem staðið hefur til árum saman að verði lögð á ferðamenn til að standa straum af þeim stóraukna kostnaði sem felllur til vegna aukinnar ásóknar ferðamanna í ýmsar náttúruperlur.

Þingmaðurinn sagði eðlilegt að aukinn kostnaður við eflingu innviða til að mæta auknum ferðamannastraumi falli ekki á innlenda skattgreiðendur einungis. Þrjú ár séu nú liðin án boðaðra aðgerða í þessum efnum af hálfu ríkisstjórnar. Nauðsynlegt sé að sýna íslenskri náttúru þá virðingu sem henni beri, fara í bót á innviðum sem kosti pening.

Ragnheiður Elín Árnadóttir svaraði að síðan náttúrupassafrumvarpinu hefði verið ýtt út af borðinu sé búið að kynna vegvísi í ferðaþjónustu þar sem gripið verði til aðgerða til að tryggja vöxt og viðgang mikilvægrar atvinnugreinar. Það þurfi að bæta í varðandi innviði greinarinnar. Um gjaldtöku á ferðamannastöðum nefndi hún að á Þingvöllum verði gjald lagt á þjónustu við bílastæði og salerni. Þá sé verið að gera breytingar á virðisaukaskatti sem gefi auknar tekjur. Ekki hafi þó verið tekin ákvörðun sem slík um nýtt frumvarp um gjaldtöku.

Helgi svaraði að það væru vonbrigði að engin áætlun sé til um gjald vegna móttöku ferðamanna. „Ég hvet ráðherrann til að beita sér fyrir að gistináttagjald verði hækkað og nýtt til að standa undir sómasamlegri móttöku ferðamanna án þess að það bitni á almenningi og velferðarkerfinu hér.“

Ráðherra svaraði að nú þegar væri landið að fá gríðarlegar tekjur, allar leiðir hefðu kosti og galla en hún væri enn þeirrar skoðunar að náttúrupassaleiðin sé góð leið, að gallar fylgi hækkun gistináttagjalds eða aukinni skattheimtu. „Við erum að taka þessa grein föstum tökum,“ sagði ráðherra,“ en um það er deilt.