„Í velferðarráðuneytinu höfum við haft samband við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og upplýst um áhuga okkar á að taka á móti flóttamönnum frá Sýrlandi,\" skrifar Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra á fésbókarsíðu sína í dag.
\"Stofnunin hefur bent á að vandinn sé mestur í flóttamannabúðum í nágrannaríkjum Sýrlands og þá sérstaklega Líbanon og brýnast að taka við flóttamönnum þaðan,\" skrifar ráðherran ennfremur: \"Við höfum jafnframt sett á fót verkefnisstjórn innan ráðuneytisins sem fundar daglega til að standa vel að verkefninu“.
Ljóst er eftir umræðu síðustu daga að stjórnvöld munu breyta ákvörðun sinni um að taka að\eins við 50 flóttamönnum á næstu árum