Ráðherra tekur völd af þjóð og þingi

Þorsteinn Pálsson segir ríkjandi landbúnaðarráðherra hafa tekið völdin af þjóð og þingi við gerð nýrra búvörusamninga. Hann hafi að auki notfært sér glufu í lögum til að semja til áratugar í stað eins árs.

Þorsteinn gagnrýnir háttalag ráðherra sem hafi kosið að semja á bak við luktar dyr, án aðkomu Alþingis: \"Þetta þýðir með öðrum orðum að landbúnaðarráðherra hyggst án lýðræðislegrar opinnar umræðu binda hendur Alþingis í rúm tvö kjörtímabil. Þannig ætlar ráðherra að  svipta kjósendur þeim stjórnskipulegu réttindum að geta með atkvæði sínu haft áhrif á landbúnaðarstefnuna og eitt mikilvægasta svið neytendamála í tvennum næstu kosningum.\"

Þorsteinn undrast þessa einræðistilburði á tímum nýrrar hugsunar um opna stjórnsýslu og lýðræði. Það skjóti skökku við að þá noti ráðherra glufu í lögum til að færa málsmeðferðina óþægilega nærri pólitískum hugmyndaheimi löngu liðinnar tíðar.

Hann minnir á að í lögum sé gert ráð fyrir að samningar af þessu tagi séu gerðir til eins árs. Þó segi þar að þá megi gera til lengri tíma. Skilyrði til slíkra frávika séu þó ekki skilgreind: \"Eigi að síður,\" skrifar Þorsteinn \"er erfitt að sjá með hvaða rökum unnt er að tífalda frávikið frá meginreglunni um tímalengdina án nýrrar lagaheimildar.\" 

Gild rök geti staðið til þess að gera langtímasamninga: \"En þá þarf Alþingi að koma að þeirri ákvörðun. Enginn stjórnmálaflokkur aflaði sér umboðs í síðustu kosningum til að binda hendur Alþingis á þessu sviði tvö næstu kjörtímabil á eftir þessu. Hér er því augljós skortur á lýðræðislegu umboði,\" skrifar þessi reyndi stjórnmálamaður til áratuga og minnir á að ráðherra sé með þessum samningum á bak við luktar dyr að skuldbinda skattgreiðendur til að setja nálægt þrettán milljarða króna á hverju ári inn í landbúnaðarkerfið.

\"Og þó að flokkur hans sé almennt á móti verðtryggingu fjárskuldbindinga mun hann ætla að verðtryggja þessa fjárskuldbindingu skattborgaranna. Landspítalinn fær aftur á móti ekki að njóta þess snotra hjartalags,\" skrifar Þorsteinn Pálsson.