Ólöf Nordal innanríkisráðherra hefur hafnað kröfu Dags B. Eggertssonar borgarstjóra um að loka NA/SV flugbraut (06/24 flugbraut) eða svokallaðri neyðarbraut á Reykjavíkurflugvelli.
Þetta kemur fram á mbl.is í dag sem vitnar í fund borgarráðs í morgun þar sem lagt var fram svarbréf innanríkisráðherra. Þar segir ráðherra það eðlilegt að láta reyna á samninga um lokun neyðarbrautarinnar fyrir dómsstólum: \"Og það er það sem við erum að fara að gera,“ segir Dagur í samtali við mbl.is.
Í bréfi ráðherra er rökum Reykjavíkurborgar að innanríkisráðuneytinu f.h. íslenska ríkisins sé skylt að tilkynna lokun NA/SV flugbrautarinnar og gera breytingar á skipulagsreglum og mögulegri bótaskyldu ríkisins vegna fyrirhugaðra byggingaráforma á Hlíðarendasvæði mótmælt.
Á fundi borgarráðs í morgun var lagt fram svarbréf innanríkisráðuneytisins til Reykjavíkurborgar við tveimur bréfum borgarstjóra til ráðuneytisins. Í bréfum borgarstjóra er fjallað um vanefndir á samningum Reykjavíkurborgar og ríkisins um lokun NA-SV flugbrautar Reykjavíkurflugvallar og ríkið hvatt til þess að efna gerða samninga um lokun brautarinnar og skipulag flugvallasvæðisins.
Í framhaldi af kynningu svarbréfsins bókaði meirihlutinn að borgarlögmanni yrði nú falið að stefna ríkinu vegna vanefnda á samningum sem kveða á um lokun þriðju brautarinnar.
Í svarbréfi innanríkisráðuneytisins er rökum Reykjavíkurborgar fyrir því að innanríkisráðuneytinu, fyrir hönd íslenska ríkisins, sé skylt að tilkynna um lokun NA-SV flugbrautar Reykjavíkurflugvallar mótmælt. Þá mótmælir innanríkisráðuneytið mögulegri bótaskyldu ríkisins vegna framkvæmda á Hlíðarendasvæðinu.
Í niðurlagi bréfsins er tekið fram að „telja verði eðlilegt að Reykjavíkurborg leggi fyrir dómstóla að fá úr þeim álitamálum leyst þannig að skorið verði úr um hvort sú skylda hvílir á ríkinu að loka flugbrautinni eða skipulagsreglum breytt.“