Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra skoðaði í morgun verksummerki eftir flóðin miklu á Siglufirði, en hann hefur látið hafa það eftir sér að ríkið þurfi hugsanlega að bæta þa tjón á staðnum sem fellur utan viðlagatryggingar.
Tjón af völdum flóðanna hleypur væntanlega á hundruðum milljóna króna, en frárennsliskerfi bæjarins er víða illa farið eftir að grjót og eðja lék það grátt á meðan á hamförunum stóð á föstudag.
Þá er og mikið eignatjón á húseignum í bænum, jafnt íbúðarhúsum og fyrirtækjum.
Sigmundur Davíð gekk um bæinn í morgun í fylgd með bæjarverkstjóra sem vísaði honum veginn, en með í för voru einnig formaður bæjarráðs og oddvitar allra flokka í Fjallabyggð. Hópurinn fór fyrst að Hvanneyrará, sem flæddi yfir bakka sína. Því næst var förinni heitið upp að aurskriðunum við Strákagöng. Ferðinni lauk svo á Eyrinni, þar sem mikil eyðilegging varð á húsum sem flæddi inn í.