Ráðherra með sáá í heljargreipum

Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir SÁÁ, er meðal viðmælenda í sunnudagsþætti Þjóðbrautar á Hringbraut. Aðrir viðmælendur eru; Bolli Héðinsson, Bryndís Haraldsdóttir, Herdís Þorgeirsdóttir, Margrét Tryggvadóttir og  Theodóra Þorsteinsdóttir.

Þórarni er mikið niðri fyrir. SÁÁ sakar Steingrím Ara Arason, forstjóra Sjúkratrygginga Íslands, um trúnaðarbrot gegn samtökunum og að hafa látið Kristjáni Þór Júlíussyni rangar upplýsingar í té, upplýsingar sem ráðherrann styðst við þegar hann ákveður fjárframlög til SÁÁ og aðra samninga.

„Við höfum aldrei átt eins erfitt með reksturinn og nú,“ segir Þórarinn.

Þjóðbraut er á dagskrá Hringbrautar nú klukkan tíu.