Twitter reiðiköst Donalds Trumps Bandaríkjaforseta bergmáluðu yfir Atlantsála um helgina í tísti um breska heilbrigðiskerfið. Breski heilbrigðisráðherrann Jeremy Hunt svaraði Trump fullum hálsi í dag.
Hunt leiðrétti rangfærslur forsetans um að breska heilbrigðiskerfið væri á hausnum og virkaði ekki. Hunt kvaðst um leið stoltur yfir því að búa í landi sem væri brautryðjandi í heilbrigðisþjónustu fyrir alla íbúa án tillits til efnahags.
Trump virtist hafa verið á horfa á viðtal við fyrrum UKIP leiðtogann Nigel Farage á FOX sjónvarpstöðinni um fjöldagöngu um heilbrigðismál í London á laugardag og skrifað Twitter færsluna í kjölfarið. Farage hélt þar fram að breska heilbrigðiskerfið hefði ekki undan straumi aðfluttra. Að sögn dagblaðsins the Guardian var efnt til mótmælanna á laugardag vegna slælegra viðbragða heilbrigðiskerfsins við vetrarkrísu þar sem spítalar hafa fyllst út á ganga m.a. vegna inflúensunnar og fólk látið lífið án þess að komast á spítala.
En öfugt við það sem Trump tísti, þá var fólk ekki að mótmæla heilbrigðiskerfinu, heldur þvert á móti að undirstrika stuðning sinn við það og krefjast þess um leið að stjórnvöld stæðu betur við bakið á því. Hunt staðhæfði í svari sínu til Trumps að enginn þeirra sem mótmælti vildi búa í landi þar sem 28 milljónir manna væru án sjúkratrygginga.