Ráðherra hafði samráð við útgerðina

„Samráðið og sjónarmið helstu hagsmunaaðila liggja einfaldlega fyrir þó að ekki væri nema við umræðu og vinnslu málsins í vor. Ekkert óformlegt samráð hefur átt sér stað á milli mín og þeirra hagsmunaaðila sem háttvirtur þingmaður getur hér um. Þetta er unnið af ríkisskattstjóra, fjármálaráðuneytinu, Fiskistofu, veiðigjaldsnefnd og síðan starfsmönnum ráðuneytisins\".

Þessu svaraði Kristján Þór Júlíusson á Alþingi þegar Þórhildur Sunna Ævarsdóttir benti honum á að í stuttum samráðskafla með frumvarpinu segir:

„Við undirbúning frumvarpsins voru sjónarmið helstu hagsmunasamtaka atvinnurekenda og launþega í sjávarútvegi þekkt og nýttust til umræðu við meðferð og undirbúning frumvarpsins.“

Nánar á

http://www.midjan.is/radherrar-hafdi-samrad-vid-utgerdina/