Sigríður Rut Júlíusdóttir lögmaður segir að það sé líkt og Illlugi Gunnarsson menntamálaráðherra nái því ekki að ráðherra geti ekki tekið ákvarðanir um ívilnanir fyrir vini sína. Málið snúist ekki um kvittanir eða launaseðla. Ekkert sé athugavert við að Illugi hafi lent í fjárhagserfiðleikum en hann geti ekki boðið vildarvinum með sér í viðskiptaferðir út fyrir landsteinana, einkum ekki ef hann sé háður þeim fjárhagslega.
Þetta kom fram í Íslandi í dag á Stöð 2 í kvöld. Sigríður Rut óskaði í þættinum Illuga til hamingju með að eiga fjársterka vini sem geti hjálpað honum í blankheitum en málið snúist ekki um það. Ekki sé hægt að taka ákvarðanir sem tengist slíkum vinum. \"Þú lætur aðra gera það,\" sagði Sigríður Rut.
Hún segist einörð í því að ráðherra geti ekki gengið svona fram og telur málið orðið of vandræðalegt til að afsökunarbeiðni höggvi á hnútinn úr þessu. Í besta falli sé það kjánalegt, í versta falli dómgreindarskortur að ráðherrann virðist ekki skilja hvað málið snúist um heldur ræði sífellt aukaatriði. Hún vilji ekki hafa slíkan ráðherra í samfélaginu.