Ragnheiður Elín Árnadóttir kom fram á hátíð Edduverðlaunanna í gærkvöld og gaf þá í skyn í stuttri kynningu að hugur hennar gæti stefnt til þess að endurgreiðslur á virðisaukaskatti yrðu hækkaðar vegna kvikmyndagerðar innanlands. Ráðherra hafði verið kynnt sem 20% konan áður en hún steig á svið. Það er sú fjárhæð sem nú er hægt að fá endurgreidda. Hún sagðist ekki sætta sig við 20%, hugur hennar stæði til þess að tosa upp þá tölu og lék vafi á hvort hún ætti við fylgi Sjálfstæðisflokksins eða hækkun á endurgreiðslum.
Ragnheiður Elín gaf í skyn að eftir ár gæti sú staða orðið uppi að hún yrði a.m.k. kölluð 25% konan. Gaf hún þar með annað hvort í skyn að endurgreiðslur á vaski yrðu hækkaðar eða þá að hún vonaðist eftir meiri fylgi við Sjálfstæðisflokkinn.
Hrútar voru sigurvegarar Eddunnar, myndin hneppti alls 11 Eddur.
Grímur Hákonarson, leikstjóri Hrúta, þakkaði Ragnheiði Elínu og Illuga Gunnarssyni mennta- og menningarmálaráðherra sérstaklega veittan stuðning við Hrúta þegar myndin var alheimsfrumsýnd í Cannes í fyrra en síðan hefur hún sópað til sín verðlaunum.